Tannlæknaþjónusta

Einar Þór Rafnsson hefur starfað sem tannlæknir í 30 ár. Eftir útskrift úr Tannlæknadeild Háskóla Íslands starfaði hann fyrstu árin við tannlækningar á Hellu, Akureyri og Ólafsfirði, og síðan hefur hann boðið upp á tannlæknaþjónustu í Reykjavík. Einar Þór veitir alla almenna tannlæknaþjónustu og ráðgjöf um tannlækningar, tannréttingar, tannholdsaðgerðir og vinnur náið með öðrum sérfræðingum í tannlækningum.

  • Skoðanir og áfangaeftirlit
  • Röntgenmyndir
  • Tannhreinsanir og flúorlökkun
  • Tannfyllingar
  • Rótarholsmeðferðir
  • Tanndráttur
  • Heilkrónur og brýr
  • Gervitennur